Eins og glöggir hafa tekið eftir hefur logo LAG Á LÆK verið uppfært. Fæðingin var nokkuð löng en eigandinn er nú loksins sátt.
Fyrri útfærsla var ágætis byrjun en upplausnin var ekki góð. Eftir að hafa legið yfir allskyns möguleikum varð þetta úr: orðmerkið inni í útlínum staðsetningarmerkis og smá landslag með.
Vörumerkið LAG Á LÆK er skráð sem orðmerki hjá Hugverkastofunni. Ég valdi orðmerki því það gefur möguleika á útfærslu í hvaða formi sem er. Sagt er að orðmerki veiti sterkustu verndina og þetta frelsi er ein ástæða þess.

Við útfærslu á vörumerkjum þarf fókusinn að vera á merkið sem auðkenna á vöruna eða þjónustuna, hvort sem það er orðmerki eða orð- og myndmerki. Það þjónar litlum tilgangi að hafa upplýsingar eins og vefsíðu eða tegund þjónustu (td. Lög og landamerki) hluta af merkinu þegar óskað er eftir skráningu þess. Það eru atriði sem litið er framhjá við mat á skráningarhæfi enda iðulega um óskráningarhæfar upplýsingar að ræða. Hins vegar má alltaf hafa slíkar upplýsingar með merkinu í markaðssetningu og leika sér með útfærslur á því.
Hafðu samband ef þig vantar aðstoð við útfærslu á vörumerkinu þínu eða umsókn um skráningu þess.

Færðu inn athugasemd