Nánar um landamerkin

Fasteign er afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.

Uppmæling merkja

Merkjalýsing með hnitsettum uppdrætti landamerkja tekur af allan vafa um legu þeirra til framtíðar.

Eigandi hefur frumkvæði að gerð merkjalýsingar og fær til þess merkjalýsanda.

Eigandi og/eða merkjalýsandi taka saman nauðsynleg gögn um merkin, s.s. eldri landamerkjalýsingar, uppdrætti, afsöl, samninga, dóma/úrskurði eða annað sem máli skiptir.

Merkjalýsandi er í sambandi við eigendur aðliggjandi jarða sem hafa þarf samráð við, aflar undirskrifta o.fl.

Aðeins er nauðsynlegt að mæla upp merki sem ekki eru skráð og þeim þinglýst með fullnægjandi hætti. Ekki er nauðsynlegt að mæla öll merki upp á sama tíma.

Stofnun fasteigna

Stofnun fasteignar getur komið til í kjölfar samruna eða við skiptingu fasteigna, t.d. stofnun sumarhúsalóðar.

Umsókn um stofnun fasteignar er lögð inn hjá því sveitarfélagi þar sem eignin er staðsett en henni þurfa að fylgja hnitsettur uppdráttur og merkjalýsing.

Við uppskiptingu landeigna fá nýjar fasteignir ný númer en við samruna erfir ný fasteign fasteignanúmer annarrar hvorrar.

Ferli við stofnun fasteignar er sambærilegt ferli við uppmælingu merkja.

Annað

Hægt er að breyta skráningu fasteignar, t.d. ef vitað er að hún er stærri/minni en hún er skráð.

Hægt er að sameina hluta af tilteknu landi annarri fasteign ef báðar eignir eru innan sama sveitarfélags.

Stofna má fasteign úr stærðarlausu/óskiptu landi sem tvær eða fleiri fasteignir eiga sameiginlega.