Hvað er hnitsetning?

Hnitsetning er það kallað þegar staðsetning á kennileiti lands eða lóðar, t.d. vörðu, steini/kletti, hornstaur o.s.frv. er mæld með þar til gerðum tæknibúnaði. Búnaðurinn þarf að tengjast fjölda gervitungla með GNSS tækni svo unnt sé að reikna staðsetningu kennileitisins með nægjanlegri nákvæmni.

Kennileitinu er þá gefið varanlegt hnit / punktur í fyrirfram ákveðnu hnitaakerfi (t.d. ISN2016) og nákvæmni þess þarf að vera:

<10cm í skipulögðu þéttbýli

<1m í dreifbýli

<5m í óbyggðum (300 m hæð eða ofar).

Hnit er iðulega útfært í metrum, t.d.:
2647642,0869 (austur), 158085,3770 (norður)

eða: 63°43´23´´ (breidd), -20°3´33´´ (lengd).

Lögun lands eða lóðar, staðsetning kennileita og/eða skipulag svæðis ræður því hversu mörg hnit þarf að taka til afmörkunar en mögulegt er að hnitsetja land eða lóð í heild eða að hluta, allt eftir þörfum hverju sinni.

Nauðsynlegt er að fara á staðinn til mælinga þar sem hnitpunktar sem hægt er að draga af korti (t.d. Google Earth eða Maps) eru ekki nægjanlega nákvæmir. Þá er hins vegar gott að nota til undirbúnings hnitsetningu.

Lag á læk er með Trimble Catalyst DA2 loftnet og viðeigandi forrit til nákvæmra mælinga á hnitum en hefur auk þess dróna sem nýtist á stöðum sem erfiðara er að komast að.


Comments

Færðu inn athugasemd